Wednesday, May 11, 2011

Á leiðinni á hjólinu sínu að fara að gefa kanínunum grænmeti.
Tekin í byrjun maí 2011.


Posted by Picasa

Thursday, January 13, 2011

Æi það líður alltaf svo langur tími á milli þess sem bloggað er...Ömurlegt bara!!!

En það er alveg frá nóg að segja, það vantar ekki. Natan er nú orðinn tveggja og hálfs ár og er drumur mömmu sinnar sem er endalaust stolt af syni sínum og elskar hverja mínútu sem hún eyðir með honum.

Við erum búin að vera veik heima frá því á mánudag (10.01.11). Natan veikist fyrst og síðan Mamma og pabbi. Fengum kvefpest algjört ógeð. Nú til að stytta okkur stundir í veikindunum þá var horft á SHERK fram og til baka sem er einn af uppáhaldsmyndum Natans þessa daganna. Í myndinni þá er mikið fjallað um ást og ástarkossa og þar sem Natan er mikið fyrir að knúsa og kyssa mömmun sína þá var auðvita boðið upp á ástarkoss.

Síðar við kvöldmatarborðið þá var Natan eitthvað óþægur, vildi ekki sitja kyrr og ljúka við matinn sinn, var alltaf að hlaupa í burti og koma svo aftur að borðinu og fá sér smá að borða. Í eitt skiptið sem hann kom að matarborðinu þá bauð hann mömmu sinni upp á ástarkoss en mamman svaraði því til að hann væri ekki ástin hennar þegar hann hagaði sér svona illa við matarborðið.

En mamma sá strax eftir þessum orðum sínum því lítli kúturinn brást mjög illa við þessu og veröld hans gjörsamlega hurndi. Hann henti sér yfir stólbakið við tilþrifum og grét sárum gráti og milli ekkasoganna mátti heyra hann segja "ég vill vera ástinn hennar mömmu, ég er ástin hennar mömmu".

Þetta var svo hrikalega sætt og krútlegt að auðvita sá mamman eftir þessu öllu saman og tók litla ástarpunginn sinn í arma sína og lét hann heyra að hann væri stærsta ástin hennar í þessum heim og auðvita fékk að fylgja með einn góður ástarkoss. :o)

Saturday, February 20, 2010












Já svona er ég orðinn stór og flottur! Og orðin svaka duglegur og sjálfstæður, vill gera allt einn og óstuddur. Ég elska að skoða bækur, dansa, syngja, hlaupa um, vera úti, skoða dýr og horfa á Skoppu og Skrýtlu. Kann meira að segja að kveikva á sjónvarpinu og DVD spilaranum þannig ég get horft á Skoppu og Skrýtlu eins oft og vill, mömmu til mikillar gleði, hún kann orðið flest lögin utan af!





Svo er ég byrjaður í leikskóla og heitir leikskólinn minn Bakkaborg. Þar er gott og gaman að vera og á ég þar marga góðar vini og ekki skemmir að leikskólakennararnir er alveg æðilegir og góðir við mig! Á öskudaginn var grímuball á Bakkaborg og auðvita fór ég í grímubúning! Þar sem ég er svo sterkur og klár þá kom ekkert annað til greina en að vera LJÓN!





Um daginn þá skellti ég mér í leikhús að sjá, já auðvita, Skoppu og Skýrtlu, hvað annað! Að sið sannra herramanna þá bauð ég dömu með mér og fyrir valinu var auðvita hún Sólveig Meer! Við skemmtum okkur konunglega enda ekki annað hægt þær vinkonur eru svo fyndnar. Ég auðvita skellti mér í mitt fínast púss eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.


Thursday, July 9, 2009

UPDATE!

Hello hello!
Aldeilis sem tíminn líður hratt, svo hratt að það er erfitt að festa hann niður á bloggsíðu.
En nú skal bæta í eyðurnar sem hafa skapast hérna í bloggleysinu.

1. Prinsinn fagri, Natan Blær, var eins og alþjóð veit, 1 árs þann 22. maí sl. Eins getur í bloggfærslu hér á undan þá skelltum við okkur í sveitina og hittum ömmur og afa, frænkur og frændur. Prinsinn fékk hvorki meira né minna en 3 afmælisveislur þessa helgina. Amma Dreki og afi komu frá Egilsstöðum og leigðu bústað rétt hjá ættaróðalinu þannig stutt var að skreppa til þeirra í pottinn og dekur að hætti þeirra. Við ákváðum svo að rækta ættartengslin og brunuðum til Dalvíkur og heilsuðum upp Bubba og Fjólu og kíktum á elliheimilið og köstuðum kveðju á Steinunni og Halldór. Þau voru auðvita svaka glöð að fá að sjá nýjasta meðliminn í ættinni enda kominn tími til þar sem kappinn er orðinn 1 árs.

2. Afmælisgjafirnar voru auðvita ekki af verri endanum: kubbar, náttföt og stígvél frá ömmu Dreka og afa á Egilsstöðum, sandalar frá ömmu og afa í Samkomugerði (eiga sko eftir að
koma að góðum notkun í ferðalaginum ógurlega sem fram undan er), sanddót frá Dóru frænku og Helgu Líf, kubbatrévagn frá Blúndum, sem að þeirra sögn á að efla og þroska fínhreyfingarnar hjá gaurnum (ekki veitir af....) Svo fékk prinsinn þessar líka flottu fatagjafir frá frændfólkinu í Finnlandi.....Takk fyrir okkur!

3. Amma Dreki og afi komi og stoppuðu í bænum áður en þau héldu á stað til Finlands. Þau eru svo pjöttuð að þau leigðu sér íbúð til að vera í meðan þau dvöldu hérna í stórborginni. (finnst greinileg ekki þeim samborið að dvelja í Breiðholtinu með hinum rónum ... :) ). En auðvita ákvað mamman að nýta sér þetta tækifæri og kom prinsinum fyrir í NÆTURPÖSSUN og skellti sér á langþráð djamm með hinum síungu Beyglum. Sannarlega þykknunar virði að eyða kvöldstund með þeim!

4. Ekki hafa bara verið eintómir sæludagar á hjá prinsinum góða. Eyrun voru endalaust að þjaka hann og var svo komið, eftir fimmta pensilinnkúrinn, að foreldarnir sögðu hingað og ekki lengra og skunduðu með Sætamund til háls, nef og eyrnalæknis. Við skoðun kom í ljós að litlu eyrun hans voru undirlög af eyrnabólgu og hljóðhimna t.d. margsprunginn. Læknir mat ástandi sem svo að það væri ekki eftir neinu að bíða en að skella rör í eyrun og lækna þetta leiðinda vandamáli í eitt skiptið fyrir öll. Úr varð að fjölskyldan fór á skuðstofuna og sett voru rör í eyrun og hluti af nefkirtlinum fjarlæður. Það verður að segjast að mamman hafði ekki taugar í þetta og varð buguð af væli áður en lækninum tókst að svæfa strákinn. Í öllu taugveikiskastinu gleymdi hún að hugsa um pabbann sem er þekktur fyrir að falla i yfirlið bara við það eitt að sjá sprautur. En pabbinn er annaður fyrir karlmennsku og hreysti og hrakaði þetta af sér þar til að búið var að svæfa snúðinn. Þá kom hann fölur og fár og alveg miður sín. Pabbinn sagði að það hafi verið hræðilegt að fylgjast með þegar verið var að svæfa kútinn, hann hafi barist um og reynt eftir fremsta megni að taka af sér svæfingagrímuna og þegar hann hafi svo sofnað þá varð snúllinn eins og líflaus dúkka í fanginu á pabbanum. Mamman prísaði sig sæla að hafa ekki verið vitni af þessum ósköpum því guð einn veit hvernig það hefði endað.....!

5. Prinsinn er búinn að vera ansi víðförull það sem af er þessu sumri en þó mest á norðurlandinu. Amma Lydía og afi komu suður til að hjúkra snúllanum eftir eyrnaaðgerðina svo mamman og pabbi gætuð óhindrað gætt að lögum þessa lands. Svo tók hún Dóra frænka upp á því að fá sér vinnu á austfjörðunum fögru.....húrra fyrir henni! Því þurftu allir að leggjast á eitt til að koma henni og hennar hafurtaks í réttan landshluta. Þannig að við brunuðum með fulla kerru af búslóð norður í sæluna og amma, afi, Dóra og Helga Líf fylgdu á eftir. Foreldarnir ákváðu svo að leyfa snúllanum að jafna sig í rólegheitunum eftir aðgerðina í sveitinni hjá ömmu og afa og skildu því prinsinn eftir þegar þau fóru aftur í bæinn. Mikið svakalega var tómlegt í kofanum þá tvo heilu daga sem prinsinn var í burtu! Amma og afi komu svo með hann aftur í bæinn en þrælahaldi þeirra í barnapössun lauk ekki þá.....langt í frá! Fjallaþrá mömmunnar var orðin óbærileg og ekkert gat stöðvað hana í að ganga Leggjabrjót þannig að amma og afi voru dæmd til að passa yfir helgina þar sem pabbinn var að vinna. Ekki nóg með það......því að eftir helgapössunina var ákveð að snúllinn færi aftur með þeim norður þannig að nú eru þau búin með ársskammtinn af snúllapössun......eins gott að amma Dreki er að koma heim ;). Mamman og pabbinn ætla svo að fara norður í kvöld, pikka snúllann, ömmu, afa og Helgu Líf upp og halda í útilegu í Ásbyrgi. Dóra frænka kemur svo að austan og hitti okkur þar. ÆÐI, er lífið ekki dásamlegt ;)

Svo styttist óðum í ferðalagið mikla og allir orðnir svaka spenntir. Amma er næstum því að vera búin að endurhanna fellihýsið og er búin að gera það SVO kósý, okkar hlakkar mikið til að fá að prófa það um helgina. Pabbinn er byrjaður að pakka og tína til það sem nauðsynlegt er að hafa með sér í svona langferð en mamman er enn að reyna skipuleggja sig i huganum, hvort hún eigi að fara með sléttujárnið eða hárblásara, síðan eða stuttan kjól, ljósu eða dökku gallabuxurnar, þessar eða hinar íþróttabuxurnar......já, það fer ekki á milli mála hver er heilinn í þessu sambandi ;)

Thursday, May 14, 2009

Frí frí sumarfrí


Víff, þá er það komið á hreint. Lydia amma er búin að bóka farið okkar með Norrænu. Við fórum út þann 30. júlí og komum ekki heim fyrr en 29. ágúst. Glæsilegt, nú er ekkert eftir nema bara að pakka. Það getur orðið pínu vandi því pabbinn segir að við verðum að pakka sparlega og það er eitthvað sem mamman hefur aldrei kunnað ;)


Annars erum við líka að fara í pínu ferðalag í næstu viku. Ætlum nefnilega að skella okkur í afmælisferð norður. Ákváðum þetta því Lydia amma bakar svo góðar kökur og því tilvalið að eyða afmælisdeginum hjá henni. Og svo er rúsínan í pylsuendanum að amma derki og afi á Egilsstöðum ætla líka að koma og vera með okkur. Er hægt að óska sér einhvers meira og betra á fyrsta afmælisdeginum sínum? Ji, hvað við erum orðin spennt og hlökkum mikið til að sjá þau. En vinir okkar í stórborginni, örvæntið ei því við munum sko halda ærlega afmælisveislu fyrir ykkur líka! Nánari dagsetning auglýst síðar :)

Tuesday, May 5, 2009

Yndisleg helgi!

Löng helgi að baki og tekinn við ný vinnuvika. Leiðinlegt hvað þessar helgar líða alltof hratt. Við skötuhjúin byrjuðum helgina á því að bregða okkur í leikhús á Sannleikann með Pétri Jóhanni. Algjör snilld! Mæli sko með þessu showið. Vallýju frænku hlotnaðist sá heiður að fá að eyða kvöldstund með snúllanum á meðan mamma og pabbinn hlóu úr sér líf og lungu. Snúllinn var auðvita til fyrirmynda eftir að foreldranir voru farnir en lét svona aðeins heyra í sér þegar þau voru að gera sig klár fyrir kvöldið. Fann greinilega að eitthvað lá í loftinu og þurfti svona aðeins að mótmæla.





Amma og afi komu svo að norðan ásamt Helgu Líf frænku. Það var nú ósköp yndislegt að hitta þau enda langt um liðið síðan síðast. Helginni var að mestu eytt með þeim í leit að fellhýsi fyrir ferðalagið mikila. Sú leit skilaði árangur því þau fundu líka þetta glæsilega fellhýsi sem þau ákvaðu að festa kaup á. Óskum þeim til lukku með kaupin! Nú er allt að verða klárt fyrir ferðina, eigum bara eftir að panta miðana!





Mamman, pabbinn, Dóra frænka og Helga Líf ákvaðu svo að enda helgina með stæll og gengu á Esjuna í kalsaveðri en algjörlega þess virði. Þau komust reyndar ekki upp á topp, létu bara duga að labba að Steini út af veðrinu. En betra er hálft fjall en ekkert fjall, ekki satt! ;)

Tuesday, April 28, 2009

Sick as a Pig


Síðustu nætur hafa verið afskaplega erfiðar hjá litla snúðinum. Hann sofnar en vaknar svo eftir 2-3 tíma, grátandi og enginn leið að róa karlinn. Hann nær að sofna aftur en sagan endurtekur sig svona 3 svar sinnum yfir nóttina. Faðir hans ákvað því að skunda með soninn á fund læknis og fá úrskurðað hvert vandamálið væri enda kærir pabbinn sig ekkert um að láta raska heilögðum nætursvefn hans. Niðurstaða úr þessari læknaheimsókn var EYRNABÓlGA. En það er nú ekki einhvað sem ekki er hægt að lækna. Fengin var mixtúra við þessum ósköpum svo að prinsinn og pabbi hans sváfu eins englar í nótt. Vonum bara að þessi eyrnabólga komi ekki aftur og verði einhvert eilífar vandamál hjá Natani. En karlinn er allur að hressast en foreldrar hans hafa því miður fengið nasaþefinn af þessari bölvaðri kvefpest.....eða kanski er þetta bara svínaveikin ógurlega sem er að hrjá þau!